Afsláttur
Afsláttur og ódýr þjónusta fyrir öryrkja
Á þessari síðu söfnum við saman upplýsingum um afslátt fyrir öryrkja. Ef þú veist um fleiri staði sem veita afslátt sem ekki er að finna hér á síðunni, endilega
láttu okkur þá vita.
Afsláttur fyrir barnafjölskyldur
Italiano Pizzeria
Barnamáltíð fylgir frítt með þegar fullorðinn kaupir mat og drykk, gildir aðeins á sunnudögum (upplýsingar af heimasíðu í febrúar 2017).
Pizza Hut
Börn yngri en 4 ára fá frítt á pizzahlaðborð, börn 4 -12 ára borga minna en fullorðnir (upplýsingar fengnar í febrúar 2017).
Satt Restaurant
Börn undir 6 ára fá frítt á brunch hlaðborð en börn 6 -12 ára fá 50% afslátt, gildir laugardaga og sunnudaga (upplýsingar fengnar í febrúar 2017).
Skrúður
Börn undir 12 ára fá frítt á hlaðborð en börn 12 - 16 ára fá 50% afslátt (upplýsingar fengnar í febrúar 2017).
Slippbarinn
Börn undir 6 ára fá frítt á brunch hlaðborð en börn 6 -12 ára fá 50% afslátt, gildir laugardaga og sunnudaga (upplýsingar fengnar í febrúar 2017).
T.G.I. Friday's
Á fimmtudögum er hægt að fá tvær fríar barnamáltíðir fyrir börn undir 12 ára (upplýsingar fengnar í október 2015).
Vox
Börn undir 6 ára fá frían brunch um helgar en börn 6 -12 ára fá 50% afslátt (upplýsingar fengnar í október 2015).
Bifreiðamál
Afslátt tengdan bifreiðum má finna undir Bifreiðamál.
Bókasöfn
Öryrkjar fá frí bókasafnskort í
Bókasafni Hafnarfjarðar,
Bókasafni Kópavogs (2 útibú),
Bókasafni Garðabæjar (2 útibú) og
Borgarbókasafni í Reykjavík (6 útibú).
Efnalaugar
Svanhvít efnalaug
Öryrkjar fá 10% afslátt. Það eru útibú á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Fótaaðgerðastofur
Fætur og fegurð - snyrti og fótaaðgerðastofa
Öryrkjar og eldri borgarar fá 15% afslátt af öllum meðferðum.
Fótaaðgerðastofa Helgu
Öryrkjar fá afslátt af meðferðum.
Fótaaðgerðastofa Kolbrúnar
Þar er veittur afsláttur fyrir öryrkja og eldri borgara.
Heilsa og fegurð
Örorkulífeyrisþegar sem koma reglulega í meðferð fá afslátt.
Garðaþjónusta
Garðaþjónusta Íslands
Þeir veita afslátt til öryrkja og eldri borgara og taka að sér ýmis verk tengd garðinum. Þeir gera fast verðtilboð og verkáætlun frítt. Hægt er að hafa samband við Róbert í síma 866-9767.
Garðar best
Þeir veita öryrkjum og eldri borgurum afslátt og taka að sér ýmis verkefni tengd garðinum. Það kostar ekkert að fá þá í heimsókn og þeir gera tilboð í verk án bindingar og kostnaðar. Síminn er 565 1400 og netfangið er gardarbest(hja)gardarbest.is
Garðálfarnir
Garðálfarnir er alhliða garðaþjónustufyrirtæki sem býður meðal annars upp á garðslátt, beðumhirðu og hellulögn. Garðálfarnir veita Sjálfsbjargarfélögum afslátt af sinni þjónustu. Garðálfarnir eru með símanúmerin 557-4444 og 892-9999. Netfang þeirra er gardalfarnir(hjá)gardalfarnir.is
Gæludýr
Hundasnyrtistofa Gæludýr.is
Öryrkjar og eldri borgarar 15% fá afslátt af hundasnyrtingu og rakstri, gegn framvísun skírteinis.
Göngugreining
Flexor
Veitir öryrkjum 5% afslátt af göngugreiningu en 15% fyrir þá sem skrá sig í Flexor klúbbinn.
Stoðtækni
Veitir öryrkjum 10% afslátt af göngugreiningu en verðið lækkar enn frekar ef innlegg eru keypt hjá þeim eftir greiningu.
Hárgreiðslustofur
Lína Lokkafína
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá 7% staðgreiðsluafslátt. Er í Hafnarfirði.
Húsnæðismál
Afsláttur af fasteignagjöldum
Öryrkjar eiga oft rétt á að fá afslátt af fasteignagjöldum, hvert sveitarfélag fyrir sig semur reglur varðandi þann afslátt sem veittur er og hægt er að nálgast upplýsingar um reglurnar á vefsíðum sveitarfélaganna.
Upplýsingar Þekkingarmiðstöðvarinnar um sveitarfélögin.
Kvikmyndahús
Einstaklingar í hjólastól fá ókeypis í bíó á allar myndir.
Öryrkjar fá afslátt í bíó ef þeir sýna örorkuskírteini (Gildir ekki á íslenskar myndir).
Laseraðgerðir á augum
Augljós
Veitir öryrkjum afslátt af hefðbundnum LASIK- aðgerðum. Þær kosta 290 þúsund kr. en öryrkjar borga 250 þúsund kr.
Leigubílar
City- Taxi S. 422 - 22 22 Sérhæfa sig í þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara og veita þeim 20% afslátt (Upplýsingar frá 3.6.2016).
Leikhús
Borgarleikhúsið
Öryrkjar fá 700 kr. afslátt af almennu miðaverði (gildir ekki á barnasýningar, september 2014).
Menningarfélag Akureyrar (áður Leikfélag Akureyrar)
Það er 800 kr. afsláttur fyrir öryrkja og eldri borgara á allri framleiðslu MAK (upplýsingar fengnar í desember 2015).
Þjóðleikhúsið
Einstaklingar í hjólastól fá ókeypis í stæði í sölum leikhússins. Öryrkjar fá 900 kr. afslátt af almennu miðaverði í Þjóðleikhúsinu. Gildir líka á barnasýningar (september 2014).
Líkamsrækt
Hress
Líkamsræktarstöðin Hress veitir öryrkjum 25% afslátt af öllum kortum. Eldri borgarar fá kortin á öðrum kjörum, svokölluð
67+kort.
Reykjalundur
Á Reykjalundi er í boði heilsurækt sem er sérstaklega hugsuð fyrir þá sem eiga erfitt með að nýta sér almennar líkamsræktarstöðvar en er þó opin öllum. Hægt er að fara í vatnsleikfimi, tækjasal og sundlaug. Ef keypt er mánaðarkort í vatnsleikfimi fær maður einnig aðgang að tækjasal og sundlaug. Almennt verð er 11.900 kr. á mánuði en öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá mánuðinn á 10.500kr. Mánaðarkort í tækjasal er á 9.000 kr. (september 2016).
Sporthúsið
Veitir öryrkjum 15% afslátt af kortum gegn framvísun örorkuskírteinis.
Stjá sjúkraþjálfun
Æfingakort í tækjasal, 10 skipta kort er á 3.000 kr. Mánaðarkort er á 3.000 kr. (September 2016)
World Class
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá 20% afslátt af kortum hjá gegn framvísun skírteinis.
Lögfræðiþjónusta
Laga
Lögfræðistofan Laga veitir öryrkjum 20% afslátt. Sú lögfræðiþjónusta sem Laga sér um er öll skjalagerð, stjórnsýslumál og skattamál. Svo dæmi sé tekið sér Laga um alla þjónustu hvað varðar samskipti við Tryggingastofnun.
Menntastofnanir
Dale Carnegie
15% afsláttur fyrir öryrkja (Upplýsingar fengnar í mars 2015).
Endurmenntun Háskóla Íslands
Öryrkjum og eldri borgurum er veittur 10% afsláttur af námskeiðum í flokkunum Menning og Persónuleg hæfni (Upplýsingar af heimasíðu þeirra í mars 2015).
Háskóli Íslands
Öryrkjar greiða lægra skráningargjald. Fara þarf í Þjónustuver á 2. hæð á Háskólatorgi með örorkuskírteini og greiða þar.
Háskólinn á Akureyri
Öryrkjar fá 50% afslátt af skráningargjöldum (upplýsingar fengnar í september 2014).
Mímir - símenntun
Veittur er 10% afsláttur af tungumálanámskeiðum gegn framvísun örorkuskírteinis (Upplýsingar fengnar í desember 2015).
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Myndlistaskólinn í Reykjavík veitir öryrkjum og eldri borgurum 5% afslátt af námskeiðum (skv. heimasíðu þeirra í desember 2015).
Síma- og tæknifyrirtæki
VodafoneÖrorku- og ellilífeyrisþegar fá afslátt af gjaldi á heimasíma og er það óháð því hvaða þjónustuleið er valin.
Tæknisveitin
Kemur heim til þín, veitir ráðgjöf, setur tækin upp, gerir við, leggur lagnir, tengir tækin saman við önnur og fær allt til að virka. Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því.
Tæknisveitin veitir öryrkjum og eldri borgurum 10% afslátt.
Reiknivél Póst-og fjarskiptastofnunar
(PFS) er ætlað að aðstoða neytendur við að gera sér grein fyrir hvaða þjónustuleiðir henta þeim miðað við ákveðna notkun fyrir síma og netþjónustu. Tilgangur reiknivélarinnar er m.a. að auka gegnsæi og skilja á milli mismunandi þjónustuþátta. Því er ekki tekið tillit til pakkatilboða og vinaafsláttar.
Sólbaðsstofur
Stjörnusól
Öryrkjum er veittur 10% afsláttur.
Strætisvagnar
- Á Akureyri er frítt í Strætó og hefur verið frá árinu 2007.
- Í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu er nýtt staðgreiðslugjald sem gildir fyrir börn, ungmenni, aldraða og öryrkja. Stök ferð kostar 210 krónur sem er helmingur af almennu fargjaldi 420 kr. Hægt er að kaupa 20 miða kort á 2500 kr. sjá nánar á gjaldskrá. Öryrkjar geta einnig keypt árskort á 19.900 kr. Framvísa þarf græna örorkuskírteyni Tryggingarsofnunar þegar miðar eða og kort eru keypt sjá nánar inn á verslun
Öryrkjar fá einnig afslátt af miðaverði ef þeir ferðast út á land með strætó. Upplýsingar fengnar verðskrá Strætó bs. (ágúst 2016). * Blindir og sjónskertir einstaklingar geta ferðast ókeypis með öllum leiðum Strætó nema leið 57. Hvíti stafurinn, leiðsöguhundurinn, eða félagaskírteini Blindrafélagsins staðfesta rétt viðkomandi.
- Fargjald í strætisvagna
Ísafjarðarbæjar er 210 krónur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Seld eru afsláttarkort um borð í strætisvögnunum og á skrifstofu Ísafjarðarbæjar. Þau kosta með afslætti 3950 krónur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega (eða 158 kr. fyrir hverja ferð greidda með miða) (upplýsingar fengnar í desember 2015 á
vefsíðu Ísafjarðarbæjar).
- Í Reykjanesbæ og nágrenni er frítt í Strætó.
Sund
Yfirlitssíða er um allar sundlaugar landsins er að finna á sundlaug.is.
Frítt í sund
Eftirtaldar sundlaugar hafa frítt fyrir fatlað fólk:
Höfuðborgarsvæðið
Sundlaug Seltjarnarness - einnig frítt fyrir fylgdarmann gegn framvísun örorkuskírteinis.
Sundlaugar í Hafnarfirði - Fyrir fatlaða einstaklinga og aðstoðarmenn þeirra er frítt í sundlaugar í Hafnarfirði (Sundhöllina, Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug) ef sýnd er staðfesting á örorku. Einnig er frítt fyrir þá sem sýna staðfestingu á umönnunarmati (upplýsingar fengnar í júní 2015).
Sundlaugar Kópavogs - Öryrkjar fá frítt í sund hjá Kópavogsbæ sýni þeir örorkuskírteini. Sundkort fatlaðra, sem gefið er út af Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu fyrir ÍTR, er einnig tekið gilt í sundlaugar í Kópavogi.
Sundlaugar Íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur (ÍTR) - Frítt er í sund fyrir öryrkja sem sýna örorkuskírteini eða sundkort ÍTR, sem gefið er út af Sjálfsbjörg á Höfuðborgarsvæðinu.
Vesturland
Jaðarsbakkalaug á Akranesi
Sundlaugin Ólafsvík - Það er frítt fyrir þá sem sýna örorkuskírteini
Sundlaugin Stykkishólmi - Öryrkjar fá afslátt
Vestfirðir
Sundlaugin Drangsnesi - Frítt er fyrir öryrkja sem búsettir eru í hreppnum.
Sundlaugina á Tálknafirði - Öryrkjar fá frítt í sund og einnig frítt fyrir fylgdarmann gegn framvísun örorkukorts.
Norðurland Vestra
Sundlaugin Skagaströnd - 75% öryrkjar fá frítt í sund
Sundlaugin Varmahlíð - Öryrkjar sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu fá frítt í sund.
Norðurland Eystra
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar, Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Ólafsfirði og Sundlaug Húsavíkur,
Suðurland
Sundhöll Selfoss,
Sundlaugin á Stokkseyri
Sundlaugin í Hveragerði
Suðvesturhornið
Grindavík, Vogum,
Afsláttur í sund
Afsláttur er veittur fyrir öryrkja í sund á eftirtöldum stöðum:
-
Blönduósi
Afsláttur er fyrir öryrkja í sundlaugina Blönduósi, sjá nánari upplýsingar um verð á vefsíðu Íþróttamiðstöðvarinnar Blönduósi (desember 2015). -
Bolungarvík
Öryrkjar fá árskort í sund á 2600 kr. (mars 2015). Sjá nánar á heimasíðu Bolungarvíkur. -
Borgarbyggð
Öryrkjar fá afslátt í sundlaugar Borgarbyggðar (Borgarnes, Kleppjárnsreykir og Varmaland), sjá nánari upplýsingar um verð og opnunartíma hér á heimasíðu Borgarbyggðar (desember 2015). -
Hólmavík
Sveitarfélagið Strandabyggð býður öllum íbúum í sveitarfélaginu 17 ára og yngri og örorku- og ellilífeyrisþegum í Strandabyggð frítt í sund árið 2015. -
Hvammstanga
Örorkulífeyrisþegar fá afslátt í sund, sjá nánari upplýsingar um verð hér á heimasíðu Húnaþings (júlí 2016). -
Kirkjubæjarklaustri
Öryrkjar fá 50% afslátt í sundlaugina Kirkjubæjarklaustri (mars 2015). -
Patreksfirði
Öryrkjar og eldri borgarar fá afslátt í sundlaug Patreksfjarðar. Það kostar 350 kr. í stað 650 kr. fyrir aðra (mars 2015). -
Reykjavík
Sundkort fatlaðra er gefið út af Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12, fyrir ÍTR og gildir í sundlaugar í Reykjavík. Sjá nánar hér fyrir neðan.
- Sundhöll Ísafjarðar, Flateyrarlaug, Þingeyrarlaug og Suðureyrarlaug Sama verð er í þessar sundlaugar, nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.
Sundkort fatlaðra
Sundkort fatlaðra er gefið út af Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12, fyrir ÍTR. Kortin eru afgreidd gegn framvísun örorkuskírteinis (græna kortið) eða ef sýnt er staðfestingarblað frá TR um að einstaklingurinn fái umönnunargreiðslur eða sé á endurhæfingalífeyri. Sundkortin gilda almannaksárið og eru afgeidd þar til einstaklingurinn er orðinn 70 ára að aldri. Gegn framvísun kortsins er frítt í sund í Reykjavík og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
Skrifstofa Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu er opin alla virka daga frá kl. 10:00-14:00. Síminn er 551-7868 og netfang félagsins er skrifstofa(at)sjalfsbjargar.is
Sundlaugar í Kópavogi veita einnig frítt í sund sé kortinu framvísað þar.
Verð: 2.500 kr. fyrir einstakling
Verð: 3.500 kr. fyrir einstakling og hjálparmann (janúar 2017)
Engin aldurstakmörk eru á korti sem gildir einnig fyrir hjálparmann. Kortið gildir almanaksárið þ.e.a.s. frá 1. janúar til 31. desember.
Þegar öryrki verður 67 ára er hægt að fara með örorkukortið (græna kortið) til Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, og þau útbúa sundkort sem gildir til 70 ára, við 70 ára aldur fær fólk í Reykjavík frítt í sund.
Veiðistaðir
Vatnskot við Þingvallarvatn |Þingvallarsveit í Bláskógarbyggð | Landverðir Þjóðgarðsins veita upplýsingar
Aðstaðan fyrir hreyfihamlað fólk og hjólastólanotendur í Vatnskoti við Þingvallavatn er nokkuð góð og liggur þar greiðfær bryggja út að fínustu kaststöðum fyrir hreyfihamlað fólk og hjólastólanotendur. Þó eru ekki aðrir staðir við strandlengjuna hentugir fyrir hreyfihamlaða að sögn landvarðar (Torfi Stefán Jónsson landvörður og verkefnastjóri: maí 2016).
Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Elli/-og örorkulífeyrisþegar fá veiðileyfi fyrir sumarið endurgjaldslaust í þjónustumiðstöð. Sjá nánar á vefsíðu Þingvalla
Hreyfihamlaðir/öryrkjar fá 1400 kr. afslátt af Veiðikortinu, greiða kr. 5.500 en hefðbundið verð er kr. 6900.
Veitingastaðir
Hamborgarabúllan
veitir öryrkjum 15% afslátt.
Hamborgarafabrikkan
veitir öryrkjum 10% afslátt af mat, gildir ekki af drykkjum eða með öðrum tilboðum.
Roadhouse
veitir öryrkjum 10% afslátt gegn framvísun örorkuskírteinis, afslátturinn gildir ekki með öðrum tilboðum.
Saffran
veitir öryrkjum og eldri borgurum 10% afslátt.
Surf and turf
veitir 15% afslátt fyrir öryrkja.
Verslanir
A4
Veitir öryrkjum 10% afslátt gegn framvísun örorkuskírteinis (ágúst 2012).
Apótek
Mörg apótek veita öryrkjum afslátt og er um að gera að spyrja um slíkan afslátt.
Eirberg
Eirberg veitir öryrkjum 5% afslátt (september 2015).
Bakarí
Mörg bakarí bjóða öryrkjum afslátt. Um að gera að spyrja.
Blómagallerí
Blómagallerí, Hagamel 107 Reykjavík, gefur öryrkjum 10% afslátt (nóvember 2014).
Blómasmiðjan
Blómasmiðjan, Grímsbæ 108 Reykjavík, gefur öryrkjum 15% afslátt (ágúst 2018).
Byggt og Búið
Byggt og búið veitir öryrkjum afslátt.
Cintamani
Cintamani veitir öryrkjum og eldri borgurum 10% afslátt (desember 2015).
Dressmann
Öryrkjar og eldri borgarar fá 10% afslátt (desember 2015)
Augað gleraugnaverslun
í Kringlunni, býður öryrkjum 15% afslátt af gleraugum. Aðgengi í verslunina er gott. Aðgengi fyrir hjólastólanotnendur í sjónmælingu er gott; viðskiptavinir geta verið í sínum hólastól meðan sjónmæling fer fram.
Optical Studio
Optical Studio býður öryrkjum 15% afslátt í búðinni en ef gleraugun eru send í Fríhöfnina í Leifsstöð er afslátturinn fyrir alla 20-25% (ágúst 2014). Verslanir Optical Studio eru á þremur stöðum, í Smáralind, Hafnargötu Keflavík og í Leifsstöð.
Gleraugnasalan Geisli
Glerártorgi/Kaupvangi á Akureyri, býður öryrkjum 15% aflsátt af gleraugum. Aðgengi í verslun og aðstaða fyrir hjólastólanotendur til að fara í sjónmælingu er mjög gott á Glerártorgi.
Gleraugnaverslunin Glæsibæ
Gleraugnaverslunin Glæsibæ veitir öryrkjum og meðlimum í Félagi eldri borgara 35% afslátt af gleraugum.
Rekstrarvörur
Öryrkjar fá 8% afslátt af völdum vörum. Það þarf að spyrjast fyrir um afsláttinn þegar verslað er.
Sjón
Sjón á Laugavegi veitir öryrkjum og meðlimum í Félagi eldri borgara 35% afslátt af gleraugum.
Sjónlínan gleraugnaverslun
Strandgötu í Hafnarfirði, býður öryrkum 10% afslátt af öllum vörum og þjónustu í versluninni. Aðgengið er gott inn í verslun að sögn starsfmans (hruðin er með pumpu sem hægt er að festa). Hjólastólanotendur sem panta sjónmælingu þurfa að geta fært sig yfir í annan stól þegar mælingin fer fram.
Sjónglerið
Sjónglerið ehf. Skólabraut 25 Akranesi býður öryrkjum 10% afslátt af gleraugum í verslun sinni. Sjá nánari upplýsingar um síma og mynd af aðgengi inn í verslun ja.is.
Fjölskyldu/-og Húsdýragarðurinn
Frítt er fyrir barn með sundkort fatlaðra (sjá hér að ofan undir og fylgdarmann, en það þarf að sýna kortið og kortið þarf að vera í gildi. Þetta gildir fyrir alla landsmenn óháð búsetu (upplýsingar fengnar í maí 2015). Einnig er frítt fyrir örorku-og ellilífeyrisþega (skv. gjaldskrá í desember 2015).
Bláfjöll og Skálafell
Börn á leikskólaaldri, eldri borgarar og öryrkjar fá frítt á Skíðasvæðin en þurfa þó að hafa "Hart kort" eins og aðrir. Hart kort kostar 1000 kr. og er hægt að fylla á aftur og aftur. Mikil þægindi eru í notkun harða kortsins, þú hefur kortið í vasanum vinstra megin og þarft ekki að taka það upp þegar þú ferð í gegnum hliðin. Sjá
heimasíðu Skíðasvæðanna (upplýsingar á heimasíðu í desember 2015).
Umönnunarkort
Útgáfa á umönnunarkortum var hætt í september 2014,
sjá frétt frá TR þar sem heilsugæslustöðvar og apótek hafa fengið rafrænan aðgang að tilteknum upplýsingum í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands og því ekki lengur þörf á kortunum. Hægt er að óska eftir staðfestingu á umönnunarmati með því að senda póst á tr@tr.is
Umönnunarkort er einnig hægt að sækja undir "rafræn skjöl" á Mínum síðum hjá Tryggingastofnun (mars 2016).
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.