Viðburðir ÞS
Námskeið í markmiðasetningu
Þekkingarmiðstöðin býður upp á námskeið í markmiðasetningu í október. Katrín Björk, sálfræðingur og starfsmaður Þekkingarmiðstöðvar, mun halda námskeiðið. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriðin í markmiðasetningu, m.a. hvernig hægt er að setja sér gott markmið og unnið markvisst að því að ná því. Litlir hópar verða á hverju námskeiði. Stefnt er að því að bjóða upp á námskeiðið nokkrum sinnum fram að áramótum.