1.2.16 - Ráðgjafar óskast á Þekkingarmiðstöðina
Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar leitar að öflugum liðsmönnum í ráðgjafateymi sitt. Um er að ræða tvær 50 -100% stöður.
Miðstöðin veitir ráðgjöf, upplýsingar og fræðslu sem nýtist hreyfihömluðu fólki sem tengdum aðilum eins og aðstandendum, þjónustuaðilum, stofnunum, fyrirtækjum og erlendum aðilum.
Starfssvið:
• Söfnun og miðlun hagnýtra upplýsinga til hreyfihamlaðs fólks
• Ráðgjöf til viðskiptavina á staðnum
• Afgreiðsla fyrirspurna í síma, í tölvupósti og á netspjalli
• Textagerð og innsetning efnis á vefsíðu
• Mörg önnur skemmtileg verkefni
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð þjónustulund og færni í samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Æskilegt að hafa þekkingu á málefnum hreyfihamlaðra
Hreyfihamlaðir einstaklingar eru hvattir til sækja um. Áhugasamir hafi samband við Þorstein Fr. Sigurðsson verkefnisstjóra í síma 5 500 111 eða á thorsteinn@sbh.is. Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal skilað á framangreint netfang. Umsóknarfrestur er til og með 5.febrúar 2016.