Hæfingastöðvar/Starfsendurhæfing/Sérstakir vinnustaðir fyrir fatlað fólk
Fjölmargir staðir á landinu bjóða upp á starfsendurhæfingu eða vinnu og virkni fyrir fatlað fólk. Starfsendurhæfing miðar að því að efla getu einstaklingsins til að takast á við launað starf á vinnumarkaðnum. Hæfingarstöðvar koma til móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og hæfingu.
Upplýsingar um þá aðila sem sinna Atvinnu með stuðningi (AMS), starfsþjálfun og hæfingu má finna á vefsíðu Hlutverks.
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hæfingarstöðvar, starfsendurhæfingarstaði og vinnustaði fatlaðs fólks. Listinn er ekki tæmandi og hafir þú upplýsingar um fleiri staði sem ekki eru tilgreindir hér biðjum við þig um að láta okkur vita.
Hæfingarstöðvar
Hæfingarstöðin Dalvegi - Kópavogi
Dalvegur | Kópavogi | Sími 564-5300 | dalvegur@kopavogur.is | Facebook
Á Hæfingarstöðinni Dalvegi fer fram starfs- og félagsþjálfun í þeim tilgangi að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi. Lögð er áhersla á þjálfun sem viðheldur og eykur starfsþrek, sjálfstæði í vinnubrögðum og félagslega færni.
Fannborg hæfingarstöð - Kópavogi
Fannborg 6 | 200 Kópavogi |Sími 554 7575 |fannborg@kopavogur.is | Vefsíða Kópavogs |
Fannborg er hæfingarstöð þar sem fólki með fötlun er boðið uppá einstaklingsmiðaða hæfingu / þjálfun með megináherslu á sjálfstæði í leik og starfi.
Hamar hæfingarstöð - Vestmannaeyjum
Búhamri 17 | 900 Vestmannaeyjum |488 2620 | lisa@@vestmannaeyjar.is| Facebooksíða Hamars
Þeir einstaklingar sem kost eiga á hæfingu eru, með minna er 30% starfsgetu samkvæmt starfsmati. Starfsmat er að öllu jöfnu unnið í Heimaey sem er verndaður vinnustaður. Ekki eru greidd laun til þeirra sem njóta þjónustu í Hamri hæfingarstöð.
Hæfingarstöðin Hvesta - Ísafirði
Aðalstræti 18 | 400 Ísafirði | 456 8230 | hvesta@isafjordur.is | Vefsíða Ísafjarðarbæjar | Facebook
Hlutverk Hvestu er meðal annars að veita starfsmönnum markvissa þjálfun, út frá stöðumötum í ýmsum athöfnum daglegs lífs (ADL). Einnig að skapa starfsmönnum vinnuverkefni og leiðbeiningar varðandi þau og eftirfylgd varðandi ný verkefni. Starfsmenn eru aðstoðaðir við að stunda endurhæfingu, finna afþreyingu, skipuleggja hana og fylgja henni eftir.
Hæfingarstöðin Reykjanesbæ
Keilisbraut 755 | 235 Reykjanesbæ | 420 3250 | haefingarstodin@reykjanesbaer.is | Vefsíða Reykjanesbæjar | Facebook
Hæfingarstöðin þjónar fyrst og fremst fólki með þroskahömlun. Markmið hæfingarstöðvarinnar er að auka færni og efla sjálfstæði þeirra sem sækja þjónustuna til að takast á við verkefni innan og utan heimilis. Bæði hvað varðar vinnubrögð og ábyrgð í starfi ásamt því að styrkja sjálfshjálpargetu og sjálfsímynd þeirra. Á hæfingarstöðinni eru unnin verk fyrir utanaðkomandi aðila en jafnframt unnið við eigin söluvörur. Má þar nefna sultugerð, framleiðsla á bolluvöndum og gerð skála.
Hæfingarstöðin við Skógarlund - Akureyri
Skógarlundi | 600 Akureyri | 462 1754 | haefingarstod@akureyri.is | Vefsíða Skógarlundar | facebook
Skógarlundur er miðstöð virkni og hæfingar. Þeir sem fötlunar sinnar vegna, þurfa sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu fá létta vinnu, þjálfun/hæfingu, umönnun og afþreyingu í Skógarlundi. Þar eru framleiddir ýmsir listmunir og nytjalist úr leir, gleri og ull, sem er selt til almennings á basar Hæfingarstöðvarinnar.
Þjónustunotendur er fatlað fólk, eldra en 16 ára og fær sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu.
Miðjan, hæfing/iðja fyrir fatlaða - Húsavík
Garðarsbraut 21 | 640 Húsavík | 464 1201 | siggahauks@nordurthing.is | Vefsíða Miðjunnar |Facebook
Miðjan er hæfingarstöð sem leggur áherslu á þróun, uppbyggingu og samþættingu á dagþjónustu fyrir fatlað fólk svo hægt sé að koma sem best til móts við þarfir notenda. Miðjan hefur það að markmiði að efla alhliða þroska, færni og sjálfstæði einstaklinga.
Dagþjónusta
Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins - Reykjavík
Hátúni 12 | 105 Reykjavík | 550 0309 | valerie@sbh.is | Vefsíða Þjónustumiðstöðvar SBH| Facebook
Hjá Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins er einstaklingsmiðuð þjónusta sem er veitt þar sem hennar er þörf, í þjónustumiðstöðinni og úti í samfélaginu, þar á meðal á heimili viðkomandi. Þjónustan er ætluð fólki á aldrinum 18 til 67 ára sem hefur hreyfihömlun og þarf á endurhæfingu, hæfingu eða afþreyingu að halda. Veitt er einstaklings- og hópþjálfun, fræðsla, ráðgjöf og tómstundaiðja er í boði.
Markmið Þjónustumiðstöðvarinnar er að viðhalda og efla færni notenda þjónustunnar við athafnir daglegs lífs. Ásamt því að styðja þá til að halda heimili og til samfélagsþátttöku á eigin forsendum.
Starfsendurhæfing
Með starfsendurhæfingu er einstaklingum sem eru ekki með atvinnu veittur stuðningur til að komast aftur til starfa (hvort sem starfið er launað eða ekki) og vera virk í samfélaginu. Fólk sem hefur dottið út af vinnumarkaðinum t.d. sökum veikinda, slysa, áfalla eða heilsubrests ætti að kynna sér möguleikann á starfsendurhæfingu. Öryrkjar sem vilja komast á vinnumarkaðinn ættu að kynna sér möguleikann á starfsendurhæfingu t.d. með því að samband við Virk starfsendurhæfingu..
Hringsjá Náms- og starfsendurhæfing - Reykjavík
Hátúni 10d | 105 Reykjavík | 510 9380 | hringsja@hringsja.is | Vefsíða Hringsjár
Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Endurhæfingin felst í einstaklingsmiðuðu námi í formi styttri námskeiða eða fullu einingarbæru námi með sérhæfðri ráðgjöf og stuðningi. Markmið Hringsjár er að þeir sem til þeirra leita verði færir um að takast á við nám í almennum framhaldsskólum og finni störf við hæfi á almennum vinnumarkaði.
Hlutverkasetur - Reykjavík
Borgartúni 1 | 105 Reykjavík | 517 3471| hlutverkasetur@hlutverkasetur.is| Vefsíða Hlutverkaseturs
Hlutverkasetur býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni á markvissan hátt eða auka lífsgæðin. Stefnt er að því að viðhalda eða efla sjálfsmynd gegnum verkefni, fræðslu og umræður. Markmið Hlutverkaseturs er að einstaklinigar sem þangað leita komist út á almennan vinnumarkað, fari í nám eða auki lífsgæði sín.
Leiðarljós Hlutverkaseturs er virk samfélagsþátttaka, að sinna hlutverkum sem gefa lífinu tilgang og þýðingu, jákvæðni og kímni.
Janus endurhæfing - Reykjavík
Skúlagötu 19 | 101 Reykjavík | 514 9175 | janus@)janus.is | Vefsíða Januss
Janus endurhæfing býður uppá starfs- og atvinnuendurhæfingu. Markmið starfseminnar er að aðstoða fólk til að komast á vinnumarkaðinn og fyrirbyggja varanlega örorku. Starfræktar eru fjórar brautir: Skólabraut, Heilsubraut, Iðjubraut og Vinnubraut. Vinnubrautin er sérstaklega ætluð þeim sem hafa verið minna en hálft ár frá vinnu eða eru komnir á þann stað í atvinnuendurhæfingu sinni að þessi endurhæfing hentar þeim. Markmið Vinnubrautar er að gefa þátttakandanum tækifæri til að meta og prófa vinnufærni sína með markvissum stuðningi fagfólks á sviði atvinnuendurhæfingar.
Umsóknir um atvinnutengda starfsendurhæfingu hjá Janusi eiga að berast til VIRK þar sem VIRK hefur umsjón með allri starfsendurhæfingu í landinu. Miðað er við að einstaklingar séu með læknisvottorð um heilsubrest en læknir getur einnig fyllt út eyðublað með beiðni um þjónustu.
Starfsemi Janus er til húsa á tveimur stöðum, Skúlagötu 19 og í húsnæði Tækniskólans- skóla atvinnulífsins á Skólavörðuholti. Tekið er fram á heimasíðu Janus að aðgengi hreyfihamlaðs fólks sé gott á Skúlagötu en ekki eins gott í húsnæði Tækniskólans. Er óskað eftir því að hreyfihamlað fólk hafi samband við Janus áður en farið er í Tækniskólann í síma 514 9175 þannig að hægt sé að veita þeim aðstoð ef þörf er á.
Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS - Mosfellsbæ
Reykjalundi | 270 Mosfellsbæ | 585 2000 | atvinna@reykjalundur.is| Vefsíða Reykjalundar
Á Reykjalundi eru nokkur svið endurhæfingar og eitt þeirra er starfsendurhæfing. Aðal markmið starfsendurhæfingar er að aðstoða fólk út á vinnumarkaðinn eftir veikindi eða slys. Mikil áhersla er lögð á fræðslu og kennslu en andleg og líkamleg færni einstaklingsins er metin, endurhæfing skipulögð og meðferð veitt ef á þarf að halda. Kannað er áhugasvið einstaklingsins, geta hans, menntun og starfsreynsla, ásamt því að skoða færniskerðingu hans og þau tækifæri sem bjóðast. Unnið er bæði einstaklingsbundið og í hópum. Til að komast í endurhæfingu á Reykjalundi þarf beiðni frá lækni.
Bæklingur starfsendurhæfingar Reykjalundar.
Samvinna starfsendurhæfing - Reykjanesbæ
Krossmóa 4 | 260 Reykjanesbæ | 421 7500 | mss@mss.is | Fara á vefsíðu
Samvinna starfsendurhæfing sérhæfir sig í starfsendurhæfingu með einstaklingum sem eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn eftir veikindi, slysi eða vegna félagslegra erfiðleika. Þátttakendur eru einstaklingar sem eru á örorku-/ endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum og fólk sem er á bótum hjá svæðisvinnumiðlun eða sveitarfélagi. Um er að ræða námstengda endurhæfingu og fer kennslan fram í húsnæði Miðstöðvar Símenntunar á Suðurnesjum (MMS) sem heldur utan um þann þátt. Auk þess er boðið upp á fjármálaráðgjöf, sálfræðistuðning, hópefli, sjálfsstyrkingu, líkamsþjálfun og ýmsa aðra sérsniðna meðferð eða ráðgjöf. Þátttakendur fara auk þessa í starfsþjálfun í fyrirtækum á Suðurnesjum.
Sólheimar - Sjálfbært samfélag - Selfossi
Sólheimum | 801 Selfossi | 480 4400 | solheimar@solheimar.is | Vefsíða Sólheima
Sólheimar í Grímsnesi hafa verið í samstarfi við Vinnumálastofnun um endurhæfingu og starfsþjálfun atvinnulausra. Þeir sem hafa ekki náð að hasla sér völl á almennum vinnumarkaði fá stuðning og verkþjálfun og vinnan sem er í boði er yfirleitt verkamannavinna. Hægt er að leita hvort sem er til Vinnumálastofnunar á Selfossi eða Sólheima til að fá nánari upplýsingar um það sem er í boði.
VIRK starfsendurhæfingarsjóður - Reykjavík
Sigtúni 1 | 105 Reykjavík | 535 5700 | virk@virk.is | Vefsíða VIRK starfsendurhæfingarsjóðs
Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum. Hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði er einstaklingum veitt aðstoð í formi ráðgjafar og starfsendurhæfingar ef vinnugeta skerðist til dæmis vegna veikinda eða slyss. Á vefsíðu VIRK má finna upplýsingar um ýmsa þjónustu sem getur nýst þeim sem vilja auka starfsgetu sína.
Sérhæfðir vinnustaðir fyrir fatlað fólk
Ás vinnustofa - Kópavogi
Ögurhvarf 6 | 203 Kópavogi | 414 0500|styrktarfelag@styrktarfelag.is | Vefsíða Ás vinnustofu
Ás vinnustofa hefur skapað vinnuaðstöðu sem sniðin er að þörfum fólks með skerta starfsgetu. Ás vinnustofa rekur saumastofu, framleiðir endurskinsmerki og sér um pökkun og límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Ásgarður handverkstæði - Mosfellsbæ
Álafossvegi 22 | 270 Mosfellsbæ | 567 1734 | asgardur@asgardur.is | vefsíða Ásgarðs
Ásgarður er handverkstæði fyrir fólk með þroskahömlun og eru þar framleidd leikföng og trémunir auk þess sem unnið er með ull, skeljar, bein, steina og leður.
Stjörnugróf 7 - 9, Bjarkarás - Reykjavík
Stjörnugróf 9 | 108 Reykjavík | 414 0540 | bjarkaras@styrktarfelag.is | Vefsíða
Í Stjörnugróf 7 - 9 eru Bjarkarás og Lækjarás þar sem boðið er upp á val um vinnu og virkni fyrir fullorðið fólk með þroskahömlun. Í Bjarkarási er unnið við ýmis konar pökkun ásamt ræktun grænmetis og blóma. Einnig eru unnir hlutir úr leir, gleri, ull, tré og pappír.
Blindravinnustofan - Reykjavík
Hamrahlíð 17 | 105 Reykjavík | 525 0025 | bvs@blind.is | Vefsíða Blindravinnustofunnar
Blindravinnustofan er verndaður vinnu-, starfsþjálfunar- og hæfingarstaður með þjónustusamning við Vinnumálastofnun. Starfsmenn starfa við pökkun og merkingu á hreinlætisvörum ásamt pökkun og merkingu ýmissa hluta fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Jafnframt er unnið við skönnun og vinnslu efnis á rafrænu formi.
Fjöliðjan Vinnu- og hæfingarstaður - Akranesi
Dalbraut 10 |300 Akranesi |433 1720 og 433 1722 | Vefsíða Fjöliðjunnar
Kveldúlfsgötu 12b |310 Borgarnesi | 433 1724 og 433 1727
Hjá Fjöliðjunni eru framleiddir ýmsir hlutir úr plasti til raflagna, auk þess sem Fjöliðjan er móttökuaðili fyrir hönd Endurvinnslunnar á einnota umbúðum og þar eru unnin verkefni fyrir ýmis fyrirtæki.
Heimaey Kertaverksmiðja - Vestannaeyjum
Faxastíg 46 | 900 Vestmannaeyjum | 481 2905 | heimaey@eyjar.is | Vefsíða Heimaeyjar
Hjá Heimaey er lögð áhersla á að skapa atvinnutækifæri fyrir þá sem búa við fötlun og veita starfsþjálfun/hæfingu með það að markmiði að efla starfsfærni viðkomandi. Á þetta við hvort sem starfsmaðurinn stefnir á að fara út á almennan vinnumarkað eða að starfa áfram á vernduðum vinnustað.
Iðjuberg - Reykjavík
Gerðubergi 1 | 111 Reykjavík | 587 7710 |
Markmið Iðjubergs er að veita einhverfu fólki vinnu við sitt hæfi og er endanlegt markmið að einhverfu starfsmennirnir geti sótt vinnu á almenna vinnumarkaðnum. Vinnan fellst aðallega í alhliða pökkun á blöðum, tímaritum, geisladiskum og alls konar límmerkingum og fleiru. Nánari upplýsingar fást hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts.
Múlalundur, Reykjalundi - Mosfellsbæ
Reykjalundi | 270 Mosfellsbæ | 562 8500 | mulalundur@mulalundur.is | Vefsíða Múlalundar
Múlalundur er vinnustofa í eigu SÍBS. Þar er lögð áhersla á að fólk með skerta starfsorku hafi kost á að vinna létt störf við hagnýtan iðnað þar sem vinnutími getur verið sveigjanlegur. Yfirleitt er markmið starfsþjálfunarinnar að hún þróist þannig að viðkomandi fari á almenna vinnumarkaðinn.
Þrennskonar úrræði eru í boði:
- Ótímabundin langtímastörf
- Starfsþjálfun - Gerður er 6 mánaða samningur. Í lok tímabilsins er framhaldið metið.
- Fjögurra vikna ólaunuð starfsþjálfun sem lýkur með starfsmati
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur - Akureyri
Furuvelli 1 | 600 Akureyri | 461 4606 | pbi@akureyri.is | Vefsíða Plastiðjunnar Bjargs Iðjulundar
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur er vinnustaður og starfsþjálfunarstaður sem hefur það markmið að þjálfa fólk til starfa og meta möguleika þeirra til vinnu á almennum vinnumarkaði.
Þrjú tilboð eru í boði:
- Starfsþjálfun er fyrir þá einstaklinga sem hafa litla sem enga reynslu af því að vera á vinnumarkaðinum.0
- Starfsendurhæfing eða atvinnuleg endurhæfing er fyrir þá sem þurfa að endurhæfingu til að geta farið aftur til starfa.
- Ótímabundin ráðning var áður kallað Vernduð vinna og er fyrir þá sem hafa farið í starfsþjálfun en geta eða vilja ekki fara út á almenna vinnumarkaðinn en eru tilbúnir til að starfa áfram hjá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi.
Spinna veflausnir - Reykjavík
Kleppsvegur 86 | 104 Reykjavík |spinna@spinna.is | Vefsíða Spinna
Spinna veflausnir slf. er hugbúnaðarstofa sem sérhæfir sig í gerð og rekstri veflausna. Við gerð á veflausnum og í daglegum rekstri hjá Spinna veflausnum er lögð áhersla á að nýta hæfileika fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu.
Stólpi - Egilsstöðum
Lyngási 12 | 700 Egilsstöðum | 471 1090 | stolpi@simnet.is | Vefsíða Stólpa
Stólpi er vinnu- og verkþjálfunarstaður með félagslega- og verklega þjálfun. Auk þess er þar veitt ýmis konar önnur þjálfun og afþreying. Stólpi tekur að sér verkefni s.s. plöstun og pökkun á vörum fyrir fyrirtæki auk þess sem þar er unnið margs konar handverk.
Vinnustofur Skálatúns - Mosfellsbæ
270 Mosfellsbær | vinnustofur@skalatun.is | Vinnustofa Skálatúns
Í Vinnustofum Skálatúns er unnið að fjölbreyttum pökkunarverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í handavinnu fer fram hönnun og framleiðsla á handverki úr ýmsum efnum og eru vörurnar seldar í gallerýi á staðnum. Opið frá 8:00-15:30 virka daga
VISS vinnu- og hæfingarstöð - Selfossi og Þorlákshöfn
Gagnheiði 39 | 800 Selfossi | 480 6920 og 480 6927 | viss@arborg.is | Vefsíða Viss
Unubakka 49 | 815 Þorlákshöfn |483 3843
Viss er með starfsstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn. Lögð er áhersla á að skapa atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk og að veita starfsþjálfun og hæfingu með það að markmiði að efla starfsfærni viðkomandi. Á það við hvort sem einstaklingur stefnir á almennan vinnumarkað eða áframhaldandi starf hjá Viss.
Starfsemi Viss er skipt í fimm þætti:
- Dagþjónustu - fjölbreytt þjálfunar/-og örvunartilboð eru í boði
- Vinnusal - þar eru unnir ýmsir listmunir og séð um pökkun fyrir fyrirtæki
- Iðju - léttari verkefni og ýmis vinnuverkefni
- Starfsþjálfun í fyrirtækjum - starfsmenn Viss í fyrirtæki og vinna þar
- Atvinnu með stuðningi (AMS) - Í gegnum AMS eru fundin störf á almennum vinnumarkaði fyrir þá sem það vilja og þeir sem komnir eru með vinnu fá stuðning.
Örvi starfsþjálfunarstaður - Kópavogi
Kársnesbraut 110 | 200 Kópavogi | 554 3277 | orvi@kopavogur.is | Vefsíða Örva
Hjá Örva býðst fötluðum einstaklingum starfsprófun og starfsþjálfun með það að markmiði að sem flestir geti starfað á almennum vinnumarkaði eftir þjálfun hjá Örva. Örvi veitir fyrirtækjum ýmis konar pökkunar- og samsetningarþjónustu auk þess sem þar eru framleiddar umbúðir úr plastfilmu og plastsvuntur.
Örtækni - Reykjavík
Hátúni 10c | 105 Reykjavík | 552 6800 | ortaekni@ortaekni.is | Vefsíða Örtækni
Örtækni, tæknivinna - ræsting, veitir fötluðu fólki tímabundna vinnu í formi starfsþjálfunar og/-eða vinnu til frambúðar. Örtækni sérhæfir sig í innflutningi og framleiðslu á sérsmíðuðum köplum, ásamt því að taka að sér ýmisleg verkefni í rafeindavinnu. Ræstingadeild annast meðal annars ræstingu á húseignum ÖBÍ, skrifstofum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, hjá Landhelgisgæslunni og fleiri aðilum. Í myndbandi um Örtækni er starfsemi fyrirtækisins vel lýst.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.