Öryrkjabandalag Íslands
Sigtúni 38 | 105 Reykjavík | 514 8000 | obi@obi.is |Vefsíða ÖBÍ
ÖBÍ var stofnað árið 1961. Aðildarfélög bandalagsins eru 33. Markmið og tilgang ÖBÍ má sjá í stefnuskrá.
ÖBÍ veitir m.a. félagslega og lögfræðilega ráðgjöf.
Undirfélög ÖBÍ
ADHD
Háaleitisbraut 13 | 108 Reykjavík | 581 1110 | adhd@adhd.is | Vefsíða ADHD
ADHD samtökin voru stofnuð árið 1988 og hétu þá Foreldrafélag misþroska barna. ADHD er alþjóðleg skammstöfun sem stendur fyrir Attention Deficit Hyperactivity Disorder eða athyglisbrestur og ofvirkni. Samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.
Ás styrktarfélag
Skipholti 50C | 105 Reykjavík | 414 0500 | styrktarfelag@styrktarfelag.is | Vefsíða Áss styrktarfélags
Ás styrktarfélag var stofnað þann 23. mars 1958, og hét þá Styrktarfélag vangefinna. Félagið vinnur að ýmsum málefnum til hagsmuna fyrir þjónustuhóp sinn sem fyrst og fremst er fólk með þroskahömlun.
Blindrafélagið
Hamrahlíð 17 | 105 Reykjavík | 525 0000 | blind@blind.is | Vefsíða Blindrafélagsins
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi var stofnað í ágúst árið 1939. Helsti tilgangur þess er að vinna að réttinda- og framfaramálum í þágu blindra og sjónskertra þannig að þeir njóti jafnréttis á við aðra í samfélaginu.
Blindravinafélag Íslands
Sæviðarsundi 54 | 104 Reykjavík | 581 2144 | sehe@isl.is
Blindravinafélag Íslands var stofnað 24. janúar 1932. Það er fyrsta góðgerðarfélag landsins, sem enn er starfandi. Starfsemi félagsins var frá upphafi tvíþætt. Annars vegar að veita hjálp til að fyrirbyggja blindu og hins vegar að hjálpa blindum. Félagið var brautryðjandi að blindravinnu og blindraskóla hér á landi.
FAAS
Hátúni 10b | 105 Reykjavík | 533 1088 | faas@alzheimer.is | Vefsíða FAAS
FAAS - félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúkra og annarra skyldra sjúkdóma. Helstu baráttumál félagsins eru að efla umræðu og skilning stjórnvalda og almennings á þeirri sérstöðu sem heilabilunarsjúkdómar setja sjúka og aðstandendur þeirra í.
Félag CP á Íslandi
Háaleitisbraut 11 | 108 Reykjavík | 691 8010 | cp@cp.is | Vefsíða Félags CP á Íslandi
Félag CP á Íslandi var stofnað árið 2001. Markmið félagsins er að beita sér fyrir hagsmunum hreyfihamlaðra einstaklinga sem greinst hafa með Cerebral Palsy (CP). Félagið mun standa fyrir söfnun og miðlun upplýsinga um CP, efla samstarf fagfólks og aðstandenda og stuðla að faglegri umræðu um málefni, úrræði og nýjungar sem tengjast CP.
Félag heyrnarlausra
Grensásvegi 50 | 108 Reykjavík | 561 3560 | deaf@deaf.is |Vefsíða Félags heyrnarlausra
Félag heyrnarlausra var stofnað 11. febrúar 1960. Tilgangur félagsins er að vinna að menningar- og hagsmunamálum heyrnarlausra og heyrnarskertra. Helstu starfsþættir félagsins eru hagsmunamál heyrnarlausra, félagsstarfsemi, menningarmál, þjónusta og ráðgjöf við félagsmenn.
Félag lesblindra
Ármúla 7b | 108 Reykjavík | 534 5348 | fli@fli.is | Vefsíða Félags lesblindra
Félag lesblindra var stofnað árið 2003. Tilgangur félagsins er að vinna að hvers konar menningar- og hagsmunamálum lesblindra. Orðið Dyslexía er samnefnari fyrir les- skrif- og reikniblindu, ekki eingöngu lesblindu. Dyslexía merkir erfiðleikar (dys) með orð (lexia), algengast er að talað sé um lesblindu.
Félag nýrnasjúkra
Hátúni 10b | 105 Reykjavík | 561 9244 | nyra@nyra.is | Vefsíða Félags nýrnasjúkra
Félag nýrnasjúkra var stofnað 30. október 1986. Markmið félagsins er að stuðla að velferð nýrnasjúkra og aðstandenda þeirra. Félagið heldur úti heimasíðu, gefur út fréttabréf og fræðslubæklinga.
Fjóla
Hamrahlíð 17 | 105 Reykjavík | 553 6611 | daufblind@ismennt.is
Fjóla – félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu (áður Daufblindrafélag Íslands) var stofnað 15. mars 1994 og eru félagsmenn og styrktarfélagar nú um 50 talsins. Tilgangur félagsins er að vinna að hvers kyns hagsmuna- og menningarmálum daufblindra. Gerður er greinarmunur á daufblindfæddum, síðdaufblindum og þeim sem verða daufblindir á gamals aldri, en sá hópur fer ört vaxandi.
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra
Pósthólf númer 8635 | 128 Reykjavík | fsfh@fsfh.is | Vefsíða Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra, FSFH var stofnað 16. september 1966. Nafn félagsins vísar til þess að það lætur sig varða flest það sem snýr að heyrnarlausum og heyrnarskertum börnum. Allt frá stofnun félagsins hafa menntamál þessa hóps verið þungamiðjan í starfi þess.
Geðverndarfélag Íslands
Hátúni 10 | 105 Reykjavík | 552 5508 | kjarval@centrum.is | Vefsíða Geðverndarfélags Íslands
Félagið var stofnað 1950 og var hugsað sem almennur félagsskapur til geðverndar og hugræktar. Hlutverk þess var að afla fjár „til þeirra framkvæmda sem ríkisvaldið hafði ekki komið auga á að sinna þurfti”. Það er einnig hlutverk félagsins að útbreiða þekkingu meðal almennings í geðverndarmálum.
Gigtarfélag Íslands
Ármúla 5 | 108 Reykjavík | 530 3600 | gigt@gigt.is | Vefsíða Gigtarfélags Íslands
Gigtarfélag Íslands (GÍ) var stofnað 9. október 1976. Markmið félagsins er að auka lífsgæði fólks með gigtarsjúkdóma og fjölskyldna þeirra. Félagið rekur Gigtarmiðstöð að Ármúla 5, Reykjavík.
Heyrnarhjálp
Langholtsvegi 111 | 104 Reykjavík | 551 5898 | heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is | Vefsíða Heyrnarhjálpar
Heyrnarhjálp-félag heyrnarskertra á Íslandi var stofnað 14. nóvember 1937. Félagið er öflugt hagsmunafélag sem rekur þjónustuskrifstofu, gefur út fréttabréf, heldur ráðstefnur og sinnir fræðsluhlutverki á stofnunum og í skólum og kynnir fötlunina og baráttumál félagsins sem víðast. Áætlað er að heyrnarskertir á Íslandi séu um 25-30 þúsund.
HIV-Ísland Alnæmissamtökin á Íslandi
Hverfisgötu 69 | 101 Reykjavík | 552 8586 | hiv-island@hiv-island.is
HIV-Ísland alnæmissamtökin á Íslandi voru stofnuð 5. desember 1988, og hétu þá Alnæmissamtökin á Íslandi. Tilgangur samtakanna er að auka þekkingu og skilning á alnæmi, að styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Samtökin hafa meðal annars leitað nýrra leiða til að uppfræða fólk um alnæmi með umræðu og fræðslu.
Hugarfar
Hátúni 10 | 105 Reykjavík | 661 5522 | hugarfar@hugarfar.is | Vefsíða Hugarfars
Hugarfar, félag fólks með áunnin heilaskaða, aðstandenda og áhugafólks um málefnið. Félagið var stofnað 21. febrúar 2007. Meginmarkmið félagsins er að vinna að því að fólk með áunnin heilaskaða og aðstandendur fái þær bestu upplýsingar og ráðgjöf sem völ er á. Félagið starfar á landsvísu og hafa fulltrúar okkar farið út á land með kynningar á félaginu.
Lauf
Hátúni 10b | 105 Reykjavík | 551 4570 | lauf@vortex.is | Vefsíða Laufs
Lauf, félag flogaveikra, voru stofnuð 31. mars 1984, og hétu þá Lauf-landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Meginmarkmið félagsins er að fræða um flogaveiki og málefni fólks með flogaveiki, standa vörð um og bæta lífsgæði þess og auka skilning almennings á flogaveiki og áhrifum hennar á daglegt líf til að draga úr hræðslu og fordómum.
Málbjörg
Pósthólf númer 10043 | 130 Reykjavík | 551 7744 | malbjorg@gmail.com
Málbjörg, félag um stam, var stofnað 10. október 1991. Félagið er fyrst og fremst félagsskapur þeirra sem stama en einnig eru aðstandendur og talmeinafræðingar félagar. Talið er að um eitt prósent fólks stami. Félagið stendur vörð um hagsmuni þeirra sem stama gagnvart yfirvöldum, skólum og atvinnulífi.
Málefli
Daltúni 14 | 200 Kópavogi | 897 4741 | malefli@malefli.is | Vefsíða Máleflis
Málefli hagsmunasamtök í þágu barna og unglinga með tal- og málþroskun var stofnað 15. september 2009. Tilgangur samtakanna er meðal annars að vinna að hagsmunamálum barna, unglinga og aðstandenda þeirra. Vinna að rannsóknum, fræðslu og auknum skilningi á þessu málefni.
MG-félag Íslands
Leiðhömrum 23 | 112 Reykjavík | 567 0723 eða 893 0823 | mg@mg-felag.is | Vefsíða MG-félags Íslands
MG–félag Íslands var stofnað 29. maí 1993 og er félag sjúklinga með vöðvaslensfár (Myasthenia Gravis) og aðstandenda þeirra. Markmið MG–félagsins er að kynna sjúkdóminn og styðja við bakið á sjúklingum og fjölskyldum þeirra.
MND félagið á Íslandi
Pósthólf númer 94 | 220 Hafnarfirði | 565 5727 eða 823 7270 | mailto:mnd@mnd.is | Vefsíða MND á Íslandi
MND félagið á Íslandi er félag sjúklinga og aðstandenda, stofnað 20. febrúar 1993. MND - Motor Nourone Disease - í sumum löndum kallað ALS eða Amyotropic lateral scolerosis, einnig Lou Gehrig sjúkdómurinn - er banvænn sjúkdómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans.
MS félag Íslands
Sléttuvegi 5 | 103 Reykjavík | 568 8620 | msfelag@msfelag.is | Vefsíða MS félags Íslands
Félagið var stofnað þann 20. september árið 1968. MS-félag Íslands er hagsmunafélag MS-sjúklinga og meginmarkmið þess er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru sjúkdómnum. MS eða Multiple Sclerosis. MS er taugasjúkdómur í miðtaugakerfi sem hrjáir um 390 Íslendinga. Um 75% MS-sjúklinga greinast fyrir 35 ára aldur og lifa í óvissu um það hversu mikið mark sjúkdómurinn muni setja á líf þeirra og fjölskyldur. MS er ennþá ólæknandi sjúkdómur.
Parkinsonsamtökin á Íslandi
Hátúni 10b | 105 Reykjavík | 552 4440 | mailto:parkinson@parkinson.is | Vefsíða Parkinsonsamtaka Íslands
Parkinsonsamtökin á Íslandi (PSÍ) voru stofnuð árið 1983. Markmið samtakanna eru meðal annars að aðstoða sjúklinga og aðstandendur, veita fræðslu og styðja við rannsóknir vegna parkinsonsveiki og vera vettvangur umræðu um sameiginleg vandamál félagsmanna.
Samtök sykursjúkra
Hátúni 10b | 105 Reykjavík | 562 5605 | diabetes@diabetes.is | Vefsíða Samtaka sykursjúkra
Samtök sykursjúkra voru stofnuð árið 1971. Tilgangur samtakanna er að halda uppi fræðslu um sykursýki, vinna að því að koma á fót sérhæfðri lækningastöð fyrir sykursjúka og bæta félagslega aðstöðu þeirra. Félagið er fyrir alla með sykursýki, aðstandendur og styrktaraðila.
SEM samtökin
Sléttuvegi 3 | 103 Reykjavík | 588 7470 | mailto:sem@sem.is/ | Vefsíða SEM samtakana
SEM - samtök endurhæfðra mænuskaddaðra voru stofnuð 1981 af nokkrum ungum karlmönnum sem áttu það sameiginlegt að hafa skyndilega hlotið varanlega fötlun sem raskaði þeirra lífi og starfi. Þar með skapaðist vettvangur til fræðslu og umræðu um líkamleg, andleg og félagsleg vandamál félagsmanna.
SÍBS
Síðumúla 6 | 108 Reykjavík | 552 2150 | sibs@sibs.is | Vefsíða SÍBS
SÍBS - samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga var stofnað 24. október 1938. Tilgangur SÍBS er sá að sameina innan vébanda sinna fólk með berkla, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, astma- og ofnæmi og svefnháðar öndunartruflanir og vinna að bættri aðstöðu og þjónustu við þann hóp. Einkunnarorð SÍBS eru ,,Styðjum sjúka til sjálfsbjargar”.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra
Hátúni 12 | 105 Reykjavík | 550 0360 | mottaka@sjalfsbjorg.is | Vefsíða Sjálfsbjargar lsf.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra var stofnað 4. júní 1959. Markmiðið er að stuðla að jafnrétti hreyfihamlaðra á öllum sviðum þjóðfélagsins m.a. með því að tryggja aðgang að atvinnu, menntun og húsnæði á jafnræðis- og jafnréttisgrunni jafnframt því að gera umhverfið aðgengilegt hreyfihömluðum.
SPOEX
Bolholti 6 | 105 Reykjavík | 588 9666 | spoex@psoriasis.is | Vefsíða SPOEX
SPOEX, samtök psoriasis- og exemsjúklinga, voru stofnuð 15. nóvember 1972. Markmið félagsins er að sinna hagsmunamálum psoriasis- og exemsjúklinga og berjast fyrir rétti þeirra til bestu hugsanlegrar meðferðar á hverjum tíma. Psoriasis er algengur sjúkdómur sem talinn er hrjá 2-4% jarðarbúa.
Stómasamtök Íslands
Skógarhlíð 8 | 105 Reykjavík | 847 0694 | stoma@stoma.is | Vefsíða Stómasamtaka Íslands
Stómasamtök Íslands (SÍ) voru stofnuð 16. október árið 1980. Þau hafa ávallt verið undir verndarvæng Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) og eru eitt af elstu stuðningsfélögum þess. Félagsmenn eru auk stómaþega, aðstandendur stómaþega, læknar og hjúkrunarfræðingar.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Háaleitisbraut 13 | 108 Reykjavík | 535 0900 | slf@slf.is | Vefsíða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
Félagið var stofnað árið 1952. Meginmarkmiðið er að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. Meginþungi í starfsemi félagsins er rekstur Æfingastöðvar að Háaleitisbraut 13, sumar- og helgardvalir í Reykjadal og sumardvalir að Laugalandi í Holtum fyrir Foreldra- og styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla.
Tourette-samtökin á Íslandi
Hátúni 10b | 105 Reykjavík | 840 2210 | tourette@tourette.is | Vefsíða Tourette-samtaka Íslands
Tourette-samtökin voru stofnuð árið 1991. Félagið hefur lagt megin áherslu á fræðslu og kynningu enda er vanþekking á Tourette heilkenni mikil. Tourette heilkenni er taugasjúkdómur sem oft er mistúlkaður, og getur valdið miklu hugarangri og kvíða vegna einkennanna sem fylgja honum, þótt hann sé ekki hættulegur.
Umsjónarfélag einhverfra
Háaleitisbraut 13 | 108 Reykjavík | 562 1590 | einhverf@vortex.is | Vefsíða Umsjónarfélags einhverfra
Umsjónarfélag einhverfra var stofnað 1977 og í því eru foreldrar, aðstandendur, fagfólk og allir þeir sem bera hag þeirra sem eru með einhverfu og þær fatlanir sem flokkast undir einhverfuvíddina (autistic spectrum) fyrir brjósti. Félagið hefur lagt ríka áherslu á fræðslu- og kynningarstarfsemi.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja
